Bless Paraguay ... Halló Ísland.

Auglýsing

Klukkan

Prófíll

  • Nafn: Bjarki Freyr Benediktsson
  • Staður: Hernandarias, Paraguay
  • Atvinna: Nemi...
  • Hjúskaparstaða: Lausu
  • Um mig: Bjarki heiti ég og þetta er skiptinemabloggið mitt. Ég er nú staddur í Paraguay, og ég verð þar næsta árið.

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Jæja, blogg komið um sumarfríið

30. janúar 2009 klukkan 01:24
Okey það er loksins komið það sem greinilega margir hafa verið að bíða eftir.... nútt blogg.

Í sumarfríinu hefur í rauninni ekkert gerst nema bara um áramótin, þá fór ég til Camboriu í Brasilíu, frábær staður, strönd og svona. Lögðum af stað klukkan 4 um morgun 30 desember síðastliðinn og vorum þar þangad til 17 janúar ef ég man rétt.

Ætla samt að byrja á að tala aðeins um jólin hérna, þau eru öðruvísi eins og var nú búinn að búast við. Aðfangadagur var eiginlega ekkert svo merkilegur dagur, var nánast bara eins og allir aðrir dagar... En þegar klukkan var svona 10 um kvöld þá settumst vid niður til að borða kjúkling, ekki merkilegri jólamatur en það, svo er bara beðið til miðnættis. Á miðnætti var hellt kamðavíni í glös og skálað fyrir jólunum, sem eru 25 desember meira hérna heldur en 24 desember. Eftir slatta af því þá fórum við í það að opna gjafirnar, það er einnig öðruvísi hér, á Íslandi fær maður oftast fleiri og minni gjafir, en hér er eiginlega bara ein stór, stundum tvær minni og alltaf bara frá mömmu og pabba, ekki frá ömmu og afa og frænku og frænda og svo framvegis. Ég var nú bara sáttur, fékk fína skyrtu og gallabuxur. Bróðir minn fékk t.d. Playstation 3 leikjatölvu og þær kosta nú alveg ágæta upphæð.

Þetta er samt eiginlega ekkert til að tala um, mér líkaði jólin ekki svo mikið... En gamlárs í Camboriu, það var alveg magnað. Eins og ég sagði hérna fyrir ofan lögðum við af stað til Camboriu klukkan 4 um morgun, það er gert svo að við komum ekki svo seint á leiðarenda þar sem ferðin tekur venjulega í kringum 12 klukkutíma. Ætla nðu bara að sleppa því að tala um keysrluna þar sem það var klárlega ekki uppáhalds parturinn minn af ferðinni.
       Við vorum búinn að koma okkur fyrir og svona í íbúðinni sem við gistum í, klukkan svona 6 um kvöldið og þá var nú eiginlega bara farið beint að sofa... Daginn eftir þá byrjaði gamanið, 31 desember, byrjuðum daginn bara á því að kíkja aðeins á ströndina sem er bara beint fyrir framan íbúðina, aðeins að prófa sandinn, en allir voru samt þreyttir eftir daginn áður svo við sváfum frekar langt fram eftir. Við vorum þarna med tveimur öðrum fjölskyldum frá Paraguay og við spjölluðum bara við þau á ströndinni allan daginn. Þegar leið á kvöldið fór fólkið að týnast inn aftur, sumir voru kvenmenn og þurfti meiri tíma til ad gera sig tilbúnar og aðrir fóru að elda matinn, við hin sem ekki vorum í vesenisnefnd héldum áfram að spjalla eitthvad og svo prófaði ég leik einhvern leik, nðanast tennis en er einhver munur, er samt bara að slða bolta á milli með spöðum, ekki mjög flókið, en samt frekar erfitt í sandinum. Seinna um kvöldið þegar allir voru búnir að baða sig og svona þá fórum við yfir í íbúðina hjá annari af fjölskyldunum sem við vorum með, frábær íbúð á 6 hæð með æðislegt útsýni yfir alla ströndina. Þar var borðað og auðvitað drukkið kamðavín með, það fylgir bara öllu hérna. Á miðnætti var svo skálað meira kampavíni og byrjad var að skjóta upp flugeldum, mjög flottar sýningar þarna. Við vorum með svo gott útsýni að við sáum allt, og þar á meðal að ströndin var öll troðfull af fólki, og svaka stemmning þarna niðri. Um klukkann 1 þá voru öll ljós í nágrenninnu tekin af, bara rafmagnið á risastóru svæði þannig að það var alveg mirkur allstaðar og svo haldið áfram að sprengja. Eftir langa stund af þessu fórum við svo flest niður og tókum þátt í partíinu á ströndinni.
     Þetta var svona aðal dagurinn vegna þess að þetta var gamlársdagur. Samt sem áður voru allir dagarnir frábærir, fórum á hverjum degi á ströndina í sólbað, jafnvel þegar það var ekki einu sinni sól, fórum bara niður á strönd til að spjalla saman og njóta þess að vera í sumarfríi í Brasilíu. Ég legg nú ekki í að segja frá hverjum einasta degi þarna en flestir dagarnir voru matarboð og kampavín og ströndin, það er svona það sem var aðallega gert. Alltaf á kvöldin fórum við í miðbæinn, við unglingarnir, og skemmtum okkur þar, þar eru allir á kvöldin svo að allt næturlðifið gerist þar nema stundum þegar eru stðor partí einhverstaðar, þá eru kannski aðeins færri. En í miðbænum drukkum við ekki kampavín þótt ótrúlegt sé, nei, þar drukkum við drykk sem er svona hefð að drekka þegar þú ert þarna, hann heitir Caipirinha, kannski ekki allir sem vilja vita hvað það er en fyrir þá sem vilja þá er þetta einfaldlega vodka, lime, sykur og fullt af klaka sett saman, og þetta drekka allir saman. Það voru nokkur kvöld þar sem við fórum á næturklúbba að dansa, fórum 3, 2 skipti voru klúbbar sem spila Reggaeton tónlist og Cumbia, sem er aðal tónlistin í Paraguay. Reyndar í öðrum þeirra var einnig spilað Salsa og Samba, sem er aðal brasðilðiska tónlistin. En eitt skiptið fórum við á tónleika með frekar frægum DJ frá Brasilíu sem heitir Skazi, ekki viss um að margir viti hver hann er en electronic aðdáendur, ég mæli eindregið með honum, alveg frábær.
     Það hefur alltaf verið eitt sem mér finnst vanta í Paraguay, þau eru ekki með Subway neinstaðar, ekki nógu gott, en svo í Camboriu sé ég að þau eru með Subway þar. Svo ég segi við fólkið sem ég er með að við bara verðum að fara þangað og enginn vissi af hverju þetta var svona frábært. Eftir að við fórum loksins þá var ég nánast hetja fyrir að uppgötva þennan svona líka æðislega skyndibitastað, mjög gaman af því.
     Það var eiginlega ekkert meira sem við gerðum eitthvað sérstakt, dagarnir voru yfirleitt svipaðir, samt allir alveg frábærir, maður labbar alveg ótrúlega mikið þarna, alveg slatta af kílómetrum á dag, sem er bara gott fyrir heilsuna og svona. Þannig að held að ég bara eftir að segja að 17 janúar þá voru pakkað í bíl, íbúðin þrifin vel og vandlega og allir fóru út í bíl ánægðir eftir ferðina en samt svekktir því að við þurftum að fara. Gaman að segja frá því að við vorum 4 í aftursætinu á litlum Benz jeppling í 12 klukkutíma, gæti ekki verið æðislegra.

Núna er ég kominn aftur til Paraguay, gerum ekki mikið, er ennþá í sumarfríi svo það er allt bara rólegt, fer stundum út í fótbolta núna í 35-40 stiga hita, nánast ómögulegt að spila, og ef við gerum það ekki þá er það bara sundlaugin, sem er mjög næs í hitanum, sundlaugarnar eru alltaf svona volgar, ekki kalra en ekki heitar, alveg fullkomið í hitanum. Bætir samt ekkert sjóinn í Brasilíu, hann er æðislegur. Skólinn hjá mér vyrjar ekki fyrr en um miðjan febrúar svo að ég er í smá fríi í viðbót. Ég var einnig bara að fá þær fréttir frá pabba mínum hérna akkúrat núna að ég er að fara með fjölskyldunni 11 febrúar á carnival hátíð, verður gaman að sjá hvernig það er.

Vona að þetta sé eitthvað í áttina að því sem fólk hefur verið að bíða eftir, njótið vel.

Og svo vil ég minna á myndasíðuna mína, þar eru t.d. myndir frá jólunum og Camboriu.
www.picasaweb.google.com/bjarki.ben

Endilega kíkja á það.

-Bjarki Freyr Benediktsson ! beint úr hitanum, ábyggilega miklu betra að vera á Íslandi í snjó og kulda og vind og rigningu, er viss um það, haha.
Bjarki Freyr Benediktsson
Fjölnir og Jóna
 
Hæ hæ Bjarki.
Jú það er sko miklu betra að vera á Íslandi í djúpum snjó heldur en á ströndinni og hana nú!!!! Það er alla vega ágætis líkamsrækt að ýta barnavagni í öllum þessum snjó :o)
Vona að þú hafir það gott það sem eftir er af sumarfríinu.
Bestu kveðjur
30. janúar 2009 klukkan 09:42
mamma
 
góður drengur. Núna er mamman stolt af sínum. Ansi hrædd um að gömlu móðurnar verði líka kátar að frétta að það sé komið blogg frá þér.
hér er snjór og kuldi og ég er að frjósa á tásunum eins og venjulega
Tommi og Lilja vasin hérna annars allt í góðu
Kveðja Mamma
30. janúar 2009 klukkan 11:58
Amma Lilja
 
Heill og sæll kæri. Svaka gaman að sjá þetta blogg. Vertu bara áfram duglegur að senda fréttir. Gangi þér allt vel.
Faðm og knús frá afa og ömmu.
30. janúar 2009 klukkan 20:14
Veronika
 
Sæll Bjarki. Er á yfirferð um síðurnar ykkar. Þú ert nú ekkert búinn að vera neitt rosa duglegur að blogga ha ha.... en það er bara gott þar sem mér var sagt að ef þið blogguðuð sjaldan væri gaman hjá ykkur. Njóttu síðustu mánaðanna þarna og hafðu það sem allra best. Ég er nú ekki búin að vera dugleg að kvitta fyrir innliti á síðuna þó ég kíki hér reglulega. Eins og áður segir njóttu þín í botn! kveðja Veronika
08. maí 2009 klukkan 18:05
Bjarki
 
Jà, thad er frekar lìtid um ad èg sè med internet hèrna thessa stundina, en annars thà er èg svo sem lìka ad skemmti mèr rosalega hèrna, reyni ad setja inn faerslu fljòtlega thegar èg hef tìma og internet. :)
08. maí 2009 klukkan 18:27

Skrifa athugasemd