Bless Paraguay ... Halló Ísland.

Auglýsing

Klukkan

Prófíll

  • Nafn: Bjarki Freyr Benediktsson
  • Staður: Hernandarias, Paraguay
  • Atvinna: Nemi...
  • Hjúskaparstaða: Lausu
  • Um mig: Bjarki heiti ég og þetta er skiptinemabloggið mitt. Ég er nú staddur í Paraguay, og ég verð þar næsta árið.

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Hola, hola

27. október 2008 klukkan 20:28
Já, svolítið langt síðan ég bloggaði síðast, ástæðan fyrir því er líklega sú að mér finnst það ekki beint það skemmtilegasta í heimi, haha.

Eeeeen eins og í síðasta bloggi ætla ég að byrja á að óska öllum Liverpool mönnum til hamingju með sigurinn á Chelsea í gær, ekki sem verst að vera fyrsta liðið til að vinna þá á brúnni í 4 ár og 8 mánuði.

Ég hef í rauninni ekki gert mikið þennan mánuðinn.... Reyndar fyrir tveimur vikum var einhverskonar þjóða hátið í skólanum (Fiesta de naciones) og þá eru bekkirnir að keppa um að vera með flottustu skreytingarnar frða sðinu landi og svo flottasta típíska dansinn frá sinni þjóð. Minn bekkur var með Líbanon og við gerðum ýmislegt fyrir þetta dæmi... Dansinn var frekar skondinn og ég gat ekki tekið þátt í honum því að ég mátti ekki hreyfa mig vega ristarinnar á mér sem er aðeins að koma til núna. Í staðinn tók ég myndavélina hans Pauls og tók fullt af myndum. þarf að stela þeim af honum svo ég geti sett þær hérna inn.... Og mamma, ég er að reyna að setja þessar blessuðu myndir inn en þetta er alveg hræðilega trekt, þetta kemur vonandi bráðlega. Eftir þetta partý þá kom frændi minn, Harry, í heimsók frá Argentínu og kom með mér í partý á næturklúbb í Ciudad del Este sem heitir því einfalda nafni, Club Area 1 (Area 1 er svona eins og 101 RVK eða eitthvað, Ciudad del Este er skipt í 9 hluta, öll heita sem sagt Area og svo talan). Þar var partý til að fagna vorinu (La noche de la primavera - nótt vorsins) og við skemmtum okkur þar í einhverja klukkutíma.... en þetta er samt það sem maður gerir nánast hverja helgi svo þetta er ekki svo merkilegt finnst mér lengur, bara svona eitthvað sem maður gerir oft.

Vorið er greinilega komið, það er farið að rigna frekar oft hérna en samt þegar það rignir er samt yfir 25 stiga hiti. En þegar það rignir ekki þá er sól og yfir 30 stiga hiti, og já meðan ég man, hvernig er veðrið á klakanum góða ? Haha, kalt ? ;)  Síðustu helgi fór ég með Bruno, Gustavo og einhverjum gæja sem ég man ekki hvað heitir til Asuncíon til að fara á tónleika með Los Verduleros, sem er mjög fræg hljómsviet í Paraguay, og á leiðinni þangað var 30 stiga hiti en sem betur fer þá byrjaði að rigna á leiðinni svo það kólnaði aðeins. Ætla að skipta þessu hérna í daga.

Föstudagur:
Þegar við komum til Asuncíon skutluðum við gæjanum sem ég man ekki hvað heitir einhvert því að hann ætlaði víst ekkert að vera með okkur þarna.... og svo fórum við heim til frænku minnar, Egni Eckert,  sem er víst bara með frægara fólki í Paraguay, er miss Paraguay held ég... er ekki viss, en hún er allavega model hérna og allir þekkja hana. Hún og kærastanum hennar, Junior (þekki hann bara með því nafni), sem er einnig mjög frægur í Paraguay því að hann stjórnar einhverri útvarpsstöð og svo er pabbi hans einhverksonar "kóngur dj-ana í Paraguay", það er það sem mér var sagt um hann allavega, þau fóru með okkur í spilavíti/"karokkí" bar. Þar þekkti allir parið en enginn vissi hverjir þessir menn með þeim væru, eftir að hafa setið þar inni í einhverjar 5 mínútur byrjar fólk að koma og byðja um myndir af þeim, en svo gerði Egni eitt mjpg fyndið, hún sagði fólkinu að ég væri bróðir hennar og þá varð ég allt í einu ekkert smá vinsæll meðal fólk þarna, allir vildu fá mynd af Egni og "bróður" hennar, alveg magnað. En eftir að hafa verið í sviðsljósinu þarna í sirka klukkutíma fórum við í partý, skrítið, haha,  og þar átti nú ekki að hleypa mér inn vegna þess að ég var ekki með vegabréfið mitt í vasanum.... en þá var gott að vera með frægu fólki, þau sögðu bara við verðinu: "Hann er með okkur, hleyptu honum bara inn félagi." Og það virkaði bara fullkomlega, verðirnir hleyptu mér inn, bara vegna þess að ég var með fólki sem allir þekkja, var nú gaman að prófa að vera merkilegur í samfélaginu, haha. Þar dönsuðum við langt fram á nótt, Egni kenndi mér að dansa við Qumbia (vinsæll tónlistarstíll í Paraguay, Los Verduleros spila það t.d.) sem var nú bara gaman, því að það er í rauninni ekki dans sem slíkur, bara planaður fíflagangur í rauninni. Mjög gaman samt. :P Síðan fórum við heim að sofa, þar sem við þurftum að vakna snemma morguninn eftir til að tala við umboðsmann um Adbana (hljómsveitina hans Brunos, ég er svona tæknilega í þessu bandi núna líka, haha).

Laugardagur:
Eftir þetta viðtal við þennan umboðsmann gerðum við nánast ekki neitt allann daginn.... bara bíða eftir kvöldinu. Þegar það loksins kom þá fórum við á einhvern mexikóskan skemmtistað, man ekkert hvað hann hét, og þar voru tónleikarnir með Los Verduleros. Ég þekki reyndar bara 3 lög með þeim en ég elska þau öll, er alltaf að hlusta á þetta, þeir spiluðu þau lög og svo nökkur sem ég þekkti ekki og svo lög með öðrum hljómsvietum, t.d. lög með Reggeaton (tónlistarstíll, mööög svo Suður Amerískt) hljómsveitinni Chapa C sem er líklega besta Reggeaton hljómsveit í heiminum. Þar gat ég æft Qumbia dansana mína, haha, það var mjög gaman.

Sunnudagur:
Þetta var nú bara fyndinn dagur, áður en við fórum heim tókum við með okkur gæjann sem kom með okkur til Asuncíon og svo kom líka Fernando með okkur (nenni ekki að segja nákvæmlega hverjir allir eru en hann er félagi okkar Brunos eins og Gustavo). Við lögðum af stað frá Asuncíon klukkann svona fjögur og áætluð heimkoma um 8 leitið, en þá byrjaði gamanið. Eftir 50 kílómetra akstur ákva bíllinn að bila, svo að við þurftum að bíða eftri strætó til að fara á næstu bensínstöð til að kaupa olíu á bílinn þar sem hann var hættur að smyrja sig, sem sagt olían var búinn. Við ákváðum að tveir færu þangað á meðan hinir "pössuðu bílinn" sem þýðir hér sitja og drekka Tereré, haha, við sendum Gustavo og frænda hans (gæjinn sem ég veit ekki hvað heitir) til að kaupa olíuna, þeir komu með öðrum strætó eftir svona 20 mínútur og við settum meiri olíu á bílinn. En við komumst nú ekki langt, við keyrðum einhverja 50 metra og þá var eitthvað meira að, núna var bíllinn hættur að kæla sig þannig að við þurftum að setja meira vatn á vatnskassann, svo við fylltum kassann af vatni og lögðum af stað, en ég kíki ðut um afturgluggann og sá að við skildum eftir okkur vatnsslóð.... svo að við komumst að því að vatnskassinn lak. Þá þurftum við að keyra einhverja 5-7 kílómetra til að láta laga bílinn, við þurftum reyndar að stoppa á leiðinni til að setja meira vatn á hann því að það kláraðist.... Bílvélavirkinn vann við bílinn í svona 2 tíma og þá var bíllinn loooksins kominn í lag og við gátum haldið áfram ferðinni. Ætluðum að vera komnir um 8 leitið en komum sirka 12 eða eitthvað allir dauðþreyttir eftir helgina, haha.

Jæja, ætla að láta þetta gott heita í bili, gat skrifað miklu meira en ég átti von á, haha. Bara viljiði gjöruð svo vel að commenta !! Ég er að eyða mínum tíma í upllýsa ykkur um þetta, svo eyðiði ykkar í að commenta þetta hjá mér ! Alltaf gaman að fá comment. :)

Hasta la próxima vez, chau chau.
Bjarki Freyr Benediktsson
Ása Katrín BjarnadóttirÞú ert nú meiri kjéllinn! Þannig næst þegar ég fer til Paraguay þá tek ég þig með og við komumst inn á alla staði af því þú ert celeb núna? awesome!!!

Goodie kassinn er kominn í gagnið og allt að ské!
Ég öfunda þig svo að ég gæti pissað undir. Planið að flytja til París einn daginn og owna þína ferð í ræmur! haha bíddu bara lilli!

Heyrumst litli frændi!
27. október 2008 klukkan 21:44
Amma Lilja
 
Hæ KÆRI.
Ég er alveg að flippa út.. Sko er svo mikið að spá í afmælisgjöfina.
Ég fór sko í búiðna í gær og fékk þessa fínu Sveppa grín spólu fyrir þig.
En svo kom Borgarvíkurfjölskyldan í mat til mín og sá spóluna og sagði að þetta passaði betur í Glasgow því þetta væru barnatímarnir með Sveppa, svo þar fór það.Hvað hvað á ég eiginlega að senda þér. ?? Á ég kannski bara að senda þér kort og pening ?? það er svo hrikalega dýrt að senda þungt.
Þetta blogg var svaka fínt hjá þér. Myndi vilja frétta meira úr skólanum.
Ertu þar allan daginn eða ????? og hvað ertu að gera eftir skóla ??
Borða allir saman heima. Og hver sér um matinn ??Eru fjölskylduhefðir ??
Hefur þú lært einhverjar nýjar matarhefðir ?? Hlakka til að fá svör við öllum þessum spurningum.. Kreist og knúserý frá Kjartansgötusettinu.
02. nóvember 2008 klukkan 18:30
mamma
 
bíð alltaf spennt eftir einhverju að lesa frá þér. Væri nú samt ánægðari ef bloggin væru stittri og kæmu þá bara oftar í staðin. Ég er samt ótrúlega ´kát með það sem komið er. þú verður bara að skrifa meira og djamma minna. kv mamma........
04. nóvember 2008 klukkan 21:55
Bjarki Freyr BenediktssonNei, get thad ekki mamma, hin mamma mín vill ad ég nýti hvert taekifaeri til ad fara á djammid med vinum mínum, og flestir hérna gera ekkert nema um helgar svo madur verdur ad nýta th
04. nóvember 2008 klukkan 22:02
mamma
 
langaði bara að segja þér að það fæddust þrír kettlingar hér í morgun. einn grár og hvítur og svo tveir svartir með smá lit í. Og annað þú eignaðist eina litla frænku í dag. Dökkhærð lítil dúlla Fjölnirsdóttir.
07. nóvember 2008 klukkan 19:36
Bjarki Freyr BenediktssonJá gódan daginn, takk fyrir ad segja mér thad, bara allt ad gerast. haha.
08. nóvember 2008 klukkan 22:10

Skrifa athugasemd