Bless Paraguay ... Halló Ísland.

Auglýsing

Klukkan

Prófíll

  • Nafn: Bjarki Freyr Benediktsson
  • Stađur: Hernandarias, Paraguay
  • Atvinna: Nemi...
  • Hjúskaparstađa: Lausu
  • Um mig: Bjarki heiti ég og ţetta er skiptinemabloggiđ mitt. Ég er nú staddur í Paraguay, og ég verđ ţar nćsta áriđ.

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Annađ frekar umbeđiđ blogg...

22. september 2008 klukkan 05:57
Að blogga er ekki beint uppáhaldið mitt en ég verð eiginlega að vera duglegri....

Ég vil nú byrja þetta blogg á að óska öllum Liverpool stuðningsmönnum til hamingju með sigurinn á Manchester United þann 13. september síðastliðinn.Hlæjandi
Og einnig vil ég óska Skagamönnum til hamingju með "frábæran" árángur í fótboltanum þetta árið og síðast en ekki síst Skallagrímsmönnum fyrir að mistakast aftur að vinna sig upp um deild, haha, en nóg komið af kaldhæðni....

Ég fór í adjustmen camp með AFS í Asuncíon og þar hittust allir skiptinemarnir í Paraguay, við erum sirka 65 nemar hérna, 29 frá Þýskalandi, 18 frá Belgíu og 8 frá Bandaríkjunum, þetta eru löndin með flesta skiptinema hérna, alveg ótrúlegt hvað eru margir hérna frá Þýskalandi.... Ég hitti íslensku stelpurnar líka, Veru, Yrsu og Agnesi, en það var eiginlega frekar erfitt að tala íslensku í fyrsta skiðti í mánuð, haha, var alltaf að rugla saman íslensku, ensku og spænsku. En í þessu campi var fíflast mikið svona blandað við að læra um að vera skiðtinemi sem og að læra um sögu Paraguay, man nú ekki mikið úr þeim tíma, haha. Þegar við fórum heim þurftum við að láta AFS fá vegebréfin okkar svo þau gætu sótt um VISA fyrir okkur, sögðu svo að þau myndi senda það til okkar vikuna eftir.... Núna er komnar 2 vikur síðan, er að verða frekar óþolinmóður útaf þessu því að ég fer stundum til Argentínu með fjölskyldunni, en ég get það ekki núna því að maður þarf að hafa vegabréfið sitt með sér til að komast þangað.... Ætluðum t.d. að fara þangað í dag, en ég er ekki kominn með vegabréfið mitt svo að við komumst ekki þangað.Óákveðinn

Þennan mánuðinn hef ég farið í 3 stykki afmælisveislur. Bruno (bróðir minn) varð 21 árs 9. september og voru haldnar tvær veislur í því tilefni, þar sem það er mikill áfangi hérna að verða 21 árs. Viku síðar fór í aðra veislu hjá Fer, vinur Brunos, fór til Ástralíu með AFS fyrir nokkrum árum, en ég man ekkert hvað hann varð gamall..... Svo sú síðasta var líklega sú skrítnasta... þá var lítil stelpa að verða 1 árs og það er bara mjög mikið mál, 1 árs er bara eins og fermingarveisla, fullt af ættingjum og vinum, foreldrana auðvitað þar sem barnið þekkir nú ekki mikið af fólki þegar það er 1 árs, koma saman og tala um lífið og tilveruna. Mest var nú töluð portúgalska þar sem þessi fjölskylda er öll frá Brasilíu, en það var bara gaman að hlusta á fólkið tala með undarlegum hreim. Ullandi

Ég hef bara tekið því rólega undanfarið því að ég fór til læknis vegna ristarinnar á mér og ég má ekki gera neitt næsta mánuðinn... þ.e. hlaupa, stunda íþróttir, dansa, labba hratt, labba mikið o.s.frv. Alveg glatað en þetta vandamál í ristinni ætti að hverfa eftir þetta. (þeir sem ekki vita þá stútaði pabbi minn ristinni á mér á ættarmóti, haha) Ég þarf líka að bera eitthvað krem ristina á hverjum degi og éta einhverjar töflur.
Það mesta sem ég hef gert síðastliðna viku var að fara með tveimur vinum mínum, Paul (skiptinemi frá Þýskalandi) og Tagger (Keith, kallaður Tagger, frá Canada en hefur átt heima í PY í 7 ár), út að borða... var samt varla út að borða, haha, ég og Paul fórum til Taggers og við fórum svo 3 yfir götuna og keyptum eitthvað brauðdæmi með skinku og osti, veit ekkert hvað þetta er kallað á íslensku en á spænsku er það allavega empanada de jamón y queso, hehe. Það er nokkuð vinsæll skyndibiti hérna, ódýr og þú þarft venjulega ekki að bíða neitt, stundum þarf að bíða í svona 5 mínútur en það fer bara eftir staðnum sem þú ferð á.

Á morgun(22.09.08, mánudagur) er svo frí í skólanum vegna þess að það er fyrsti vordagurinn hjá okkur, svo það ætti að fara að hitna bráðlega, haha. Hefur reyndar verið mjög kalt uppá síðkastið, eitthvað í kringum 15-17 stig, allir ða drepast úr kulda hérna, og þar á meðal ég.... er greinilega eitthvað farinn að venjast hitanum hérna víst að 17 stiga hiti er bara skítakuldi fyrir mér núna. Annars hefur veðrið bara verið fínt.... nema í gær, var brjáluð rigning allan daginn, stytti reyndar upp um 8 um kvöldið en allt var samt á floti í marga klukkutíma á eftir.

Ég bara man því miður ekki meira hvað ég hef gert síðan síðasta blogg svo að það verður bara að hafa það... hehe. Mér finnst þetta samt alveg nóg í bili hvort sem er, haha. Hér ætla ég samt að setja heimilsfangið mitt, svo ef einhver vill senda mér póstkort eða pakka þá þarf að skrifa þessar upplýsingar nákvæmlega svona á kortið/pakkann:
Dr. Ramón Motta (Bjarki Freyr)
Botero Norte
Parana Country Club
Hernandarias
Paraguay
Tel: (061)57699

Getið kannski sleppt símanúmerinu ef þið eruð að senda svona pínulítil póstkort með ekkert pláss til að skrifa heimilsfangið en mamma mín sagði mér að það séu meiri líkur á að pósturinn komi heilu og höldnu til skila ef að símanúmerið er þarna líka.

En segjum þetta gott í bili, bestu kveðjur frá Paraguay, chau chau.Svalur

P.S. Mamma, ég skal setja myndirnar af húsinu inn mjög bráðlega fyrir þig.Glottandi
Bjarki Freyr Benediktsson
Mwhahaha eg er ekki byrjud i skolanum..
Eda well, skolinn er byrjadur, en EG er ekki byrjud i honum hahah. Er enntha i hofudborginni..
22. september 2008 klukkan 06:08
Bjarki Freyr BenediktssonThetta er ég nú ekki ánaegdur med, bara eitt comment ! :O Ég bíd eftri commentunum, vil fá ad heyra frá ykkur !
Sérstaklega núna thar sem ég ég ligg bara uppí rúmi allan daginn med einhverja undarlega veiki sem ég fékk í gaer. Alveg aedislegt ad liggja heima allan daginn...
24. september 2008 klukkan 13:07
Clara
 
hahaha var þér kalt þegar það voru 17°C hahahaha bjarki þó :'D hahahaha.. en jamm hringdu í afs og segðu þeim að clara á eftir að koma og lemja alla ef þeir gefa þér ekki passportið þitt :'D ég kem sko :'D
24. september 2008 klukkan 23:17
Bjarki Freyr BenediktssonHaha, suuure. Ég hringdi reyndar á mánudaginn og málid er víst eitthvad í sambandi vid logregluna. Logreglan hérna er eitthvad treg í ad gefa okkur VISA dvalarleyfid...
24. september 2008 klukkan 23:42
Já, það er ekki gott ef að íslendingum verður kalt í 17 stiga hita! hehe það boðar ekki gott.
En annars er bara gott að þú skemmtir þér þarna:)
19. október 2008 klukkan 19:14
Ása Katrín BjarnadóttirÉg hef ákveđiđ ađ senda ţér íslensku pakka um jólin, hvađ ţarf ég ađ senda hann snemma til ađ ţú fáir hann 24.des?

Frábćrt ađ ţađ sé gaman - langar sjúklega ađ kíkja í heimsókn prumpiđ ţitt!!

Heyrumst lilli!
27. október 2008 klukkan 12:32

Skrifa athugasemd