Bless Paraguay ... Halló Ísland.

Auglýsing

Klukkan

Prófíll

  • Nafn: Bjarki Freyr Benediktsson
  • Staður: Hernandarias, Paraguay
  • Atvinna: Nemi...
  • Hjúskaparstaða: Lausu
  • Um mig: Bjarki heiti ég og þetta er skiptinemabloggið mitt. Ég er nú staddur í Paraguay, og ég verð þar næsta árið.

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Hér kemur það

31. ágúst 2008 klukkan 18:27
Jæja hérna kemur þetta margumbeðna blogg loksins, hef ekki haft voðalega mikin tíma í þetta en ég fer að setja nýjar myndir bráðum líka, held samt að ég geti bara sett voðalega fáar myndir inná þessa síðu....
Samt sniðugt hjá þessu bloggar.is fólki að ég er með stillt á spænskt lyklaborð en get samt skrifað íslenska stafi þegar ég blogga, mjög sniðugt.

Það hefur svo sem margt gengið á.... Ég er næstum búinn með spænsku tímana mína, held að það sé ein vika eftir, er aðeins betri í spænskuni núna en verð vonandi mun betri bráðlega.... Við höfum farið reglulega með spænsku kennaranum í einhverja leiðangra að skoða hitt og þetta, t.d. Rio del Monday (á hérna í Paraguay, samt ekki næstum jafn stór og Parana), dýragarðinn og Itaipu (stærstu stíflu heims). Það hefur allt verið mjög áhugavert og landslagið hérna er mjög falelgt svo að það er alltaf gaman að fara eitthvað með bekkjarfélugunum. Er reyndar að verða frekar pirraður á moskífóflugunum, er með einhver 25+ bit núna, skil ekki hvernig þær fara að þessu, hef aldrei séð þær bíta mig....

Gengur ágætlega í skólanum, svona miðað við að ég skil ekki mikið af því sem við erum að gera þar. Hefur verið próftíð síðastliðnar 2 vikur og ég hef tekið öll prófin, fallið alveg svakalega á þeim öllum en ég tók þau samt :P Frekar erfitt að ná prófunum hér, eins og á Íslandi þarf maður að hafa 50% rétt til að ná, en hérna þarf maður að hafa 70% rétt til að ná. Og það eru erfiðari fög hérna, þetta er svolítið mikið öðruvísi. Svo er eitt sem ég elska við skólann og ég hvet alla sem lesa þetta og eru í skóla til að fá sinn skóla til að gera slíkt hið sama. Það er að á mánudags og föstudagsmorgnum þá mæta allir í skólann og hittast fyrir utan skólann, þar raða krakkarnir sér í raðir eftir bekkjum og spilaður er þjóðsöngurinn og allir syngja með, ég vil þetta til Íslands !!

Það er frekar gaman af því hvað Paraguay, Brasilía og Argentína eru nálægt hvort öðru. Í síðustu viku þá fór ég til allra þessa landa á 15 mínútum, hehe, frekar skondið. Ferð ekki til 3 landa á 15 mínútum á Íslandi. :D Ég er svo að fara til Asuncíon á föstudaginn til að fara í aðlögunarbúðir, eins og það er kallað, til að hitta alla skiptinemana aftur og segja hvernig okkur líður og svona, svo það er 5 tíma rútuferð þá og svo önnur á sunnudaginn, alveg æðislegt. Síðan fer ég til Brasilíu 31. desember og verð þar í einhverja 20 daga í sólbaði á ströndinni. (þeir sem ekki vita þá er desember hásumar í S-Ameríku þannig að hitinn gæti farið upp í 45 gráður) En sú ferð mun ekki byrja sú skemmtilegasta því að fyrst þurfum við að keyra í einhverja 12 klukkutíma.... Engar smá vegalengdir sem hægt er að fara hérna.

En fyrir fólk sem hefur áhuga á því þá eru hérna smá upplýsingar um hvernig hægt er að ná smabandi við mig:
GSM-símanúmerið mitt héna: +595981571808
Heimsilisfang: Einhverstaðar í Parana Country Club, Hernandarias, Paraguay. Klára þetta þegar ég veit nákvæmlega hvar ég á heima. :P
Svo er alltaf hægt að nota E-Mail eða bara þessa síðu.

Ég held að það sé komið nóg í bili.... er samt ábyggilega að gleyma einhverju sem ég gæti sagt frá en man ekkert eins og er, get sagt fólkið er frábært, stelpurnar er bara nokkuð fallegar og veðrið er helvíti gott. 28°C akkúrat núna. Heyrðu já þarf að skjótast, er víst að fara til Argentínu ! Alltaf fréttir maður allt á síðustu stundu.

Chau, Chau amigos !
Bjarki Freyr Benediktsson
Veronika
 
Sæll Bjarki.
Ég er nánast daglegur gestur á síðunum ykkar Borgarnesskiptinemanna - þó ég kvitti nú ekki alltaf. Gaman að lesa hvað þú virðist vera heppinn með fjölskyldu og aðstæður. Njóttu bara ársins í botn því það verður liðið áður en við vitum. Annars er allt gott héðan að frétta. Skólinn byrjaður og haustið að koma. Gangi þér vel í framhaldinu. Bestu kveðjur, Veronika
02. september 2008 klukkan 21:20
Ja eg er lika fornarlamb moskito flugnanna herna, eg er med 11 bit! Theim finnst thad mjog skritid thvi thaer radast ekki svona mikid a thau. En vid keyptum einhver krem adan, svo ad thetta aetti ad lagast..

En annars what? Thad er vetur herna.. og brodir minn sagdi ad sumarid kaemi ekki fyrr en i januar.. oh well.
10. september 2008 klukkan 21:48
Gunnhildur Bergmann
 
hola, cómo está usted allí en Paraguay ?
de todas formas, que mira adelante para oír su historia sobre su vida en Paraguay :D
llámeme, domingo ;D

-Gunnhildur ;P
17. september 2008 klukkan 09:09
Bjarki Freyr BenediktssonMuy bien, me gusta Paraguay mucho, gracias. :)
17. september 2008 klukkan 18:33
Ása Katrín BjarnadóttirÉg fæ ekki útbrot frá moskítóflugum, booyja ég myndi owna pleisið þarna! Fínt að heyra í þér snáði, sendi þér kannski goodie bag ef þú setur inn heimilisfangið þitt þarna!

blessó kæri frændi!
Ása
22. september 2008 klukkan 01:07
Bjarki Freyr BenediktssonHaha, skal setja heimilisfangid med naesta bloggi ;) :D
22. september 2008 klukkan 04:31

Skrifa athugasemd