Bless Paraguay ... Halló Ísland.

Auglýsing

Klukkan

Prófíll

  • Nafn: Bjarki Freyr Benediktsson
  • Staður: Hernandarias, Paraguay
  • Atvinna: Nemi...
  • Hjúskaparstaða: Lausu
  • Um mig: Bjarki heiti ég og þetta er skiptinemabloggið mitt. Ég er nú staddur í Paraguay, og ég verð þar næsta árið.

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Fyrstu dagarnir

06. ágúst 2008 klukkan 22:16
Jæja, þá er maður kominn til Paraguay, flugferðin var ekki sú skemmtilegasta en ég lifði hana allavega af. 5 og hálfur tími til NY var frekar löng en samt ekki svo, í NY fór ég ásamt Veru, Agnesi, Yrsu (hinir skiptinemarnir sem fóru til PY) og Jeremy, sem tók á móti okkur á JFK, á Time Squere og skoðuðum það eitthvað. Svo var bara sofið og lagt af stað í næstu flug...

Við þurftum að fljúga frá NY til Sao Paulo og það voru sirka 11 klukkutímar ! Bara leiðindi.... En það er eiginlega ekki það versta því að ég átti að fara frá Sao Paulo sama dag en starfsmennirnir á flugvellinum prentuðu miðann minn eitthvað vitlaust svo að ég komst ekki í flugvélina.... þá þurfti ég að gista þar.... en daginn eftir það þá komst ég loksins á leiðarenda, til Paraguay.

Þegar ég var búinn að vera í Hernandarias (borgin semég á heima í) í 2 tíma þá var mér boðið í party í Ciudad del Este (borgin sem er um 200-400m frá Hernandarias), fólkið hérna er mikið í því, og party-in hérna eru frekar stór, leigja skemmtistaði og bjóða hátt í 100 manns ef ekki meira. Tónlistarsmekkurinn hér er mjög svipaður og á Íslandi og tískan líka.

Ég er búinn með 2 daga í skólanum og skólinn er frekar mikið öðruvísi en á Íslandi eins og lögin, nánast allt er bannað en öllum er sama, fólk keyrir hérna löngu áður en það fær bílpróf og svona, þetta er skondið. Ég byrjaði líka í spænsku kennslu í dag og þetta er bara helvíti erfitt tungumál að læra en þetta kemur á endanum.

Jæja nenni þessu ekki lengur, kem með meira seinna.

-Bjarki Freyr Benediktsson.
Bjarki Freyr Benediktsson
hljómar vel, ég býð spennt.. fer út eftir 2 daga :D
nærð spænskunni ekkert rugl ;)
11. ágúst 2008 klukkan 01:41
Clara
 
spænskan er ekkert erfið elskan.. ;D i know it.. ég öfunda þig samt ekkert smá, mig langar að fara út líka.. skemmtu þér vel þarna.. og komdu með fleiri blogg ;D
15. ágúst 2008 klukkan 16:58
Dagný Hulda:p þú ert kominn! Jæja ég vona að þú aðlagir þig nú samt vel þarna...
Dude, þér var boðið í partý fyrsta daginn, það er nú aldrei leiðinlegt... nú vantar bara fjólubláa partýhattinn xD
skemmtu þér...
18. ágúst 2008 klukkan 19:40
Bjarki
 
Hahaha, já klárlega.
En þetta gengur svo sem ágætlega. Er ekki alveg kominn með spænskuna á hreint en hún er mun betri en hún var þegar ég kom svo að þetta kemur allt bráðlega. Ég held að það verði ekki svo erfitt að aðlagast hérna, ég elska þetta land, veðrið er gott, fólkið er frábært og fjölskyldan er æðisleg. Það erfiðasta verður líklega maturinn, haha, en það er allt að koma líka.
18. ágúst 2008 klukkan 21:57
SvandísFarðu nú að blogga nýtt blogg ;)
23. ágúst 2008 klukkan 13:00
Ellert Hjelm
 
Drullastu til að bogga maður!
31. ágúst 2008 klukkan 02:22

Skrifa athugasemd